Líbýa 2008

Posted by Picasa


Hér er komin Líbíuáætlun í megindráttum og breytist ekki úr þessu að best ég veit.

Þessi ferð hefur vakið hellings athygli og dagsetningar eru nú komnar. Fyrri ferð 10.-24.okt Seinni 26.okt-9.nóv. Seinni ferðin er eins og sú fyrri.


Ferðalýsing með léttum fyrirvara
1.dagur 10.okt
Með eftirmiðdagsflugi til London.
Gist þar á flugvallarhóteli

2.dagur 11.okt
Morgunverður
Um morguninn með British Airways til Tripoli í Líbýu. Staðarleiðsögumaður tekur á móti hópnum. Þar er gengið frá vegabréfsáritunum og svo rakleitt á hótel Safari. Það er miðsvæðis og er nýtt, notalegt og hreinlegt. Góð herbergi. Það telst 4ra stjörnu á libískan mælikvarða en við mundum trúlega telja það 3ja stjörnu.
Móttökukvöldverður.

3.dagur 12.okt
Morgunverður.
Rólegur dagur í Tripoli til að kanna handverks og gullmarkaði. Mætti heimsækja nokkrar moskur og markverða staði í leiðinni. Gist á Safari. Borðað utan hótelsins.

Tripoli er björt og falleg borg með stórum grænum svæðum og fögrum torgum. Merkja má ítölsk áhrif í byggingum enda réðu Ítalir hér í nokkra áratugi á 20.öldinni. Ekki skortir heldur myndir og málverk ef leiðtoganum Gaddafi sem ríkt hefur síðan 1969.

4.dagur 13.okt
Morgunverður
Dagsferð til Leptis Magna sem er 110 km austur af Tripoli. Þetta er einhver merkilegasti rústastaður frá tímum Rómverja utan Ítalíu.
Við borðum hádegisverð skammt frá Leptis Magna.
Verjum deginum svo við að skoða þennan einstaka stað.
Kvöldverður utan hótelsins.

5. dagur. 14.okt
Morgunverður
Keyrt til suðvesturs til vinjabæjarins Ghadames sem er einkum byggður Berbum. Á leiðinni stoppum við í nokkrum sérstæðum og fallegum þorpum.
Við komum síðdegis til Ghadames er einstaklega notalegur bær.
Gistum á prýðilegu hóteli í útjaðri Ghadames, sem heitir Gasr Al Diwan.

6. dagur. 15.okt
Morgunverður.
Við skoðum gömlu borgina sem er undir forsjá UNESCO. Byggingarlag er sérstakt hvað skreytingar og húsagerð snertir. Skoðum safn þar og síðdegis keyrum út á sandana og horfum á berbadansa og söngva. Borðum nýbakað brauð undir stjörnum.
Gistum á Gasr Al Diwan.

7 dagur. 16.okt
Eftir morgunverð er stefnt aftur til Tripoli og förum um vesturfjöllin. Við komum við á nokkrum stöðum m.a. í Kabaw og Gharyan sem er frægt fyrir listilega keramikgripi. Einkar skemmtilegir bæir.
Gist á Safari í Tripoli.

8.dagur 17.okt
Morgunverður.
Um morguninn er skoðunarferð á Þjóðminjasafnið
Síðdegis er flug til Sabha, eyðimerkurborgar í suðurhlutanum.
Gist á Hótel Afríka í Sebha. Það er hið þokkalegasta hótel.

9.dagur. 18.okt
Morgunverður
Síðan er lagt upp á jeppum áleiðis til Akakusfjalla sem eru einstök að fegurð og fjölbreytileika og alls konar forsögulegar minjar. Keyrum þarna um og alls staðar blasir dýrðin við. Gerum stans víða meðal annars í Germavinjabænum og Al Qwinat. Um kvöldið komum við í eyðimerkurbúðirnar Adad, Þar er aðstaða með miklum ágætum.

10. dagur 19.okt
Morgunverður
Við verðum allan daginn í skoðun á Akkakus svæðinu og komumst þó ekki yfir nema hluta svæðisins. Gistum í tjöldum. Við fáum dýnu og tvö teppi og ætti að duga mætavel.

11.dagur 20.okt
Morgunverður
Við förum um ýmsa dali og um stórbrotnar sandöldur. Á þessum slóðum búa einkum Túaregar og við komumst etv í ´heimsókn til fjölskyldu. Tuaregar eru víða í löndunum í kring og eru hinir upphaflegu íbúðar þessara landa.Gistum í tjöldum.

12.dagur 21. okt
Morgunverður
Nú er stent til Wadi Medkandusj sem er tólf kílómetra langur dalur þar sem fornar rúnaristur prýða dalinn. Þetta er dularfullur staður og spennandi. Gist í Tkerkeba búðum. Aðstaða prýðisgóð.

13.dagur. 22.okt
Við förum til Ubari um sandöldur og skoðum einstaklega fögur eyðimerkurvötn og skrítið landslag. Síðdegis aftur til Sabha og fljúgum til Tripoli kl 21.30. Við komuna farið á Safari hótel

14.dagur 23. okt
Morgunverður
Menn hvílast vel eftir eyðimerkurferðina. Frjáls tími. Kveðjukvöldverður

15. dagur. 24.okt
Morgunverður
Brottför til flugvallar og með British Airways til London.Eftir skamma bið í London heim til Íslands

Verð með öllum fyrirvara 300 þúsund.

Innifalið:
Flug til og frá London og áfram til og frá Tripoli
Allir skattar
Gisting allar næturnar
Fullt fæði
Flug innan Libyu
Keyrsla
Skoðunarferðir og aðgangseyrir á skoðunarstaði
Vatn og gosdrykkir

Ekki innifalið
Gisting í London og morgunverður 8 þús fyrir tveggja manna herb og 11.500 fyrir eins manns.
Vegabréfsáritun til Líbíu (þúsund krónur)
Tips til staðarleiðsögumanns og bílstjóra, um 100 dollarar á mann.
Greiða þarf einhverja smáupphæð á rústastöðum (þ.e Leptis Magna og í Wadi Medkandusj) amk. þegar menn eru með vídeóvél.

Nokkur orð um:
Hótel í Tripoli, Ghadames og í Sebha eru prýðileg. Búðirnar eru einfaldar en í góðu lagi. Yfirleitt sofið í smáhýsum. Klósett og sturtur eru skammt undan. Þegar gist er í tjöldum fáum við vatn og pappír.
Nauðsynlegt að hafa vasaljós innan seilingar. Ef menn eru kulvísir ættu þeir að hafa svefnpoka meðferðis. Hiti á daginn í eyðimörkinni er um 30 stig en lækkar á næturna. Við fáum dýnu og tvö teppi.

Þetta verður sérstæð og spennandi ferð, trúi ég og margt mun koma á óvart. Menn skyldu athuga að Líbía er ekki ferðamannaland svo aðbúnaður er sums staðar athyglisverður og menn taki því með blíðu. Breytingar geta orðið - væntanlega ekki stórvægilegar. Athugið að slíku skyldi tekið með þolinmæði og vinsemd ef í það fer.

Held að óhætt sé að staðhæfa að við verðum fyrstu ferðamannahóparnir af Íslandi sem leita til Líbíu.

Ferðin greiðist þannig:
Staðfestingargjald verður að borga fyrir 10.mars 25 þús kr.
1.maí 50 þús
1.júní 50 þús
1.júlí 50 þús
1.ág 50 þús
1.sept 75 þús (þá skal einnig greiða fyrir eins manns herbergi í Líbíu sem er sem svarar 170 evrur)
og sömuleiðis gistinguna í London og áritunargjaldið þúsund krónur

Hef beðið alla að senda mér ljósrit af vegabréfum.
Fundur þar sem miðar verða afhentir ofl (báðir hópar) verður ekki síðar en mánaðamót sept/okt. Þar verður einnig afhent uppfærð áætlunin, þó hún hafi raunar lítið breyst, merkimiðar fyrir töskur, barmmerki og fánabönd til að setja á töskur.

Athugið að áfengi er bannað í Líbíu og ekki má fara með það inn í landið. Því banni er mjög samviskusamlega framfylgt.


Posted by Picasa